Beint į leišarkerfi vefsins

Forsķša

Kvasir eru samtök fræðslu- og símenntunarmiðstöðva.  Rétt til aðildar að samtökunum eiga svæðisbundnar fræðslu- og símenntunarmiðstöðvar á Íslandi sem sinna símenntun og öðrum verkefnum skv. samningum við menntamálaráðuneytið.

Markmið samtakanna eru m.a.:

  • Að efla símenntun og háskólanám á Íslandi
  • Að efla  og auka skilning atvinnulífsins á mikilvægi símenntunar sem auðlind og fjárfestingu til framtíðar sem getur bætt afkomu einstaklinga, fyrirtækja og samfélagsins í heild.
  • Að efla og stuðla að aukinni samvinnu fræðslu- og símenntunarmiðstöðva.
  • Að efla samvinnu við menntastofnanir og aðra þá sem bjóða fullorðinsfræðslu og símenntun í landinu með það að markmiði að auka aðgengi almennings að menntun og þekkingu á heimaslóðum.
  • Að vera vettvangur umræðu um fullorðinsfræðslu og símenntun á Íslandi sem og í norrænu og alþjóðlegu samhengi.
  • Að gæta sameiginlegra hagsmuna fræðslu- og símenntunarmiðstöðva og kynna starf þeirra.
  • Að efla skilning á hlutverki fræðslu- og símenntunarmiðstöðva í menntakerfi þjóðarinnar og vinna þeim skilningi stuðning á opinberum vettvangi.

Starfsstöðvar Kvasis í ágúst 2009


Fréttir

13.2.2010

Samningur um menntunarśrręši fyrir ungt fólk

Föstudaginn 5. febrúar 2010 undirritaði Inga Dóra Halldórsdóttir f.h. Kvasis og Unnur Sverrisdóttir f.h. Vinnumálastofnunar samstarfssamning um menntunarúrræði fyrir ungt fólk. Árni Páll Árnason félags- og tryggingamálaráðherra staðfesti samning með undirritun sinni.

Unnur Sverrisdóttir, Árni Páll Árnason og og Inga Dóra Halldórsdóttir undirrita samninginn

29.10.2009

Samningur um nįms- og starfsrįšgjöf

Miðvikudaginn 28. október 2009 var undirritaður samningur milli Vinnumálastofnunar, KVASIS, samtaka fræðslu- og símenntunarmiðstöðva og Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins um náms- og starfsráðgjöf fyrir atvinnuleitendur. Sjá meðfylgjandi fréttatilkynningu.

Undirritun 


Stękka og minnka texta

Texti ķ sjįlfgefinni stęrš Texti ķ mišlungs stęrš Texti ķ stórri stęrš Hamur fyrir sjónskerta